Fréttir

Kötturinn Simbi hollvinur MH

Kötturinn Simbi hefur gert sig heimakominn í MH á þessu haustmisseri. Simba virðist líka vel athyglin sem hann fær frá nemendum og starfsfólki skólans og mætir gjarna í tíma en þýska er í sérstöku uppáhaldi hjá honum. Hægt er að fylgjast betur með Simba og heimsóknum hans í MH á facebooksíðu skólans.

Umsóknir um skólavist

Því miður liggur umsóknarvefur Menntagáttar (www.menntagatt.is) niðri og þurfa umsækjendur að sækja um skólavist í gegnum www.inna.is/framhaldsskolaumsokn/ Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember næstkomandi og verður öllum umsóknum svarað í byrjun desember.

Dagur íslenskrar tungu 2017

Fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar 16. nóvember, hefur verið haldinn hátíðlegur sem dagur íslenskrar tungu frá árinu 1996. Á deginum er staðið fyrir sérstöku átaki í þágu íslensks máls og þannig er athygli þjóðarinnar beint að stöðu tungumálsins í samfélaginu. Dagurinn er opinber fánadagur en á vef stjórnarráðsins segir: "Hinn 16. nóvember skal draga fána á stöng á húsum opinberra stofnana, sem eru í umsjá valdsmanna eða sérstakra forstöðumanna ríkisins, sbr. 2. gr. forsetaúrskurðar um fánadaga og fánatíma nr. 5/1991." Fögnum deginum með því leggja rækt við tungumálið okkar.

Lið MH sigraði í Leiktu betur

Laugardaginn 11. nóvember fór fram leiklistarkeppni framhaldsskólanna Leiktu betur en 8 framhaldsskólar kepptu í Borgarleikhúsinu að þessu sinni. Lið MH vann eftir æsispennandi einvígi við FG sem hafði titil að verja. Í liði MH eru Björg Steinunn Gunnarsdóttir, Diljá Nanna Guðmundsdóttir, Hólmfríður Hafliðadóttir og Inga Steinunn Henningsdóttir. Þess má geta að þetta var eina kvennaliðið í keppninni og í 12. sinn sem MH vinnur. Við óskum þeim innilega til hamingju með sigurinn.

Lið MH, Ofhugsuðir, sigruðu í Boxinu - framkvæmdakeppni framhaldsskólanna

Lið MH, Ofhugsuðir, sigruðu í Boxinu - framkvæmdakeppni framhaldsskólanna sem fór fram í Háskólanum í Reykjavík 11. nóvember. Þetta er annað árið í röð sem lið MH sigrar í keppninni en að þessu sinni tóku 8 lið þátt í úrslitakeppninni. Lið Ofhugsuða skipa: Gunnar Dofri Viðarsson, liðsstjóri, Árni Haukur Árnason, Birkir Jóhannes Ómarsson, Davíð Sindri Pétursson og Þorsteinn Jónsson. Við óskum þessum glæstu fulltrúum skólans innilega til hamingju með sigurinn.

Nýjar bækur á bókasafni MH

Fjöldi nýrra jólabóka er nú aðgengilegur á bókasafni skólans og kennir þar ýmissa grasa en í boði eru ljóðabækur, skáldsögur og ævisögur auk erlendra bóka. Fyrir aðdáendur íslenskra höfunda getur verið erfitt að ákveða hvaða bók á að lesa fyrst þar sem úrvalið er svo sannarlega fjölbreytt en líkt og fyrri ár verða glæpasagnahöfundar sennilega vinsælastir. Eru nemendur og starfsfólk hvatt til að heimsækja bókasafnið og kynna sér hvað er í boði.

Dagur myndlistar í MH

Miðvikudaginn 1. nóvember kl. 14.15 heldur Kristbergur Pétursson myndlistarmaður kynningu í stofu 11. Eru nemendur jafnt sem starfsfólk boðið velkomið á kynninguna. Kristbergur stundaði nám á sínum tíma við Myndlista-og handíðaskóla Íslands 1979-1985 og við Ríkisakademíuna í Amsterdam 1985-1988. Hann hefur haldið margar sýningar á verkum sínum og tekið þátt í samsýningum heima og erlendis. Í verkum sínum sækir Kristbergur innblástur sinn í hafnfirska hraunið og æskuslóðirnar þar sem hann er uppalinn.

MH-ingar í fjölmiðlum vegna kosninga til Alþingis

Nú styttist í að landsmenn kjósi til Alþingis og í kvöld var forseti nemendafélags MH, Enar Kornelius Leferink, í viðtali í Kastljósinu á RÚV um kosningarnar. Í dag birtist einnig grein á visir.is eftir MH-inginn Lilju Guðmundsdóttur þar sem hún hvetur ungt fólk til að taka þátt í kosningunum.

Nemendur MH á Umhverfisþingi 2017

Tveir nemendur MH, Bríet Felixdóttir og Saga Rut Sunnevudóttir, fluttu nýlega fyrirlestur á Umhverfisþingi 2017 sem haldið var í Hörpu 20. október sl. Þær komu þar fram sem fulltrúar ungu kynslóðarinnar en fyrirlestur þeirra bar yfirskriftina „Hvernig framtíð viljum við?“

Vetrarfrí 20.-23. október

Vetrarfrí er dagana 20.-23. október og er skólinn lokaður þessa daga. Við vonum að nemendur og starfsfólk eigi gott vetrarfrí og mæti endurnært til náms og vinnu þriðjudaginn 24. október.