Fréttir

Dagur íslenskrar tungu

Í tilefni af degi íslenskrar tungu 16. nóvember mun Halldór Armand Ásgeirsson skáld halda stutt erindi og lesa úr nýrri skáldsögu sinni Drón í stofu 11 kl. 12.15 mánudaginn 17. nóvember. Halldór er gamall MH-ingur, var í Morfísliði MH og var  t.d. valinn Ræðumaður Íslands árið 2006. Hann þjálfaði líka Morfíslið MH í mörg ár.  Allir velkomnir!  

Haustfrí 16. - 20. október

Dagana 16. til 20. október fara nemendur og stafsmenn skólans í haustfrí. Skólinn er lokaður þessa daga. Skrifstofan verður opnuð aftur þriðjudaginn 21. október kl. 8:30.

Leiðarlok öldungadeildar

Lárus H. Bjarnason rektor skrifar: Nú er komið að leiðarlokum öldungadeildar Menntaskólans við Hamrahlíð.  Ákveðið hefur verið að leggja deildina niður um áramótin 2014 – 2015.  Ástæðurnar eru annars vegar sífellt þverrandi aðsókn og hins vegar nýleg ákvörðun yfirvalda í tengslum við fjárlagagerð næsta árs um að leggja af fjárveitingar til þeirra sem leggja stund á nám til stúdentsprófs og hafa náð 25 ára aldri. Með þessu er rekstrargrundvöllur kvöldnámsins í MH algerlega brostinn og skólanum er nauðugur einn kostur að hætta þeirri starfsemi. Stjórnendum MH þykir miður gangvart núverandi nemendum deildarinnar að þurfa að tilkynna þetta með svo knöppum fyrirvara. Ekki er útilokað að unnt verði að greiða úr málum sumra með því að bjóða þeim setu í einstaka áföngum dagskólans á komandi vorönn.

Vali dagskólanema fyrir vorönn 2015 er lokið.

Nú eiga allir nemendur sem hyggja á áframhaldandi skólavist í dagskóla á vorönn 2015 að hafa lokið vali.

Vali fyrir vorönn lýkur í dag mánudaginn 13. október

Vali fyrir vorönn 2015 lýkur í dag mánudaginn 13. október. Þeir sem ekki eru búnir að velja verða að gera það strax í dag!

Val fyrir vorönn 2015. Course selection spring 2015

Nú er komið að vali áfanga fyrir vorið 2015 Valið hefst í dag þann 6. október og á að vera lokið þann 10. október. Leiðbeiningar um framgang valsins og áfangaframboð hefur nú þegar verið sett á heimasíðu MH. It is high time to select courses for the spring term 2015 Starting today October 6th you can enter the courses of your choice for next term. The last day to select is Wednesday October 10th. Instructionsand áfangaframboð /available courses for the next term are now to be seen on our homepage.

Aðalfundur foreldraráðs MH verður 2. október kl. 20:00 - 21:30

Aðalfundur foreldraráðsins verður fimmtudaginn 2. október í stofu 11 kl. 20-21:30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skýrsla stjórnar og kosning stjórnar. Fræðsluerindi er frá Páli Ólafssyni félagsráðgjafa og sérfræðingi hjá Barnaverndarstofu, sem fjallar um samskipti foreldra og ungmenna. Allir foreldrar nemenda í MH er velkomnir.

Gullverðlaun í Hjólum í skólann

Hjólum í skólann árið 2014 stóð frá 12. – 16. september. Alls tóku 19 framhaldsskólar þátt í ár, en það er tveimur fleiri skólum en árið 2013. Þátttakendur voru alls 1.236 og hjólaðir voru 12.528 km eða 9,36 hringir í kringum Ísland. Menntaskólinn við Hamrahlíð vann gullverðlaun í flokki skóla með yfir  1000 nemendur og starfsmenn. Vel gert MH-ingar!

Tökum öll höndum saman og flokkum rusl!

STÖÐUPRÓF/PLACEMENT TESTS 17. SEPT. 2014

Stöðupróf á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins verða haldin 17. september kl. 16:00 í Menntaskólanum við Hamrahlíð í eftirtöldum tungumálum: Stöðupróf í albönsku, filipísku (tagalog), finnsku, hollensku, japönsku, kínversku, króatísku, lettnesku, litháísku, portúgölsku, pólsku, rússnesku, svahílí  og víetnömsku. Tengill í (link to) rafræna skráningu í stöðupróf - online registration Placement tests (for Secondary School credit) in the following languages will be held on September 17th at 4 pm. Placement tests in Albanian, Chinese, Croatian, Dutch,  Filipino (tagalog), Finnish, Japanese, Latvian, Lithuanian, Portugese, Polish, Russian, Swahili  and Vietnamese .