Fréttir

Þorgerði veitt viðurkenning fyrir framúrskarandi störf við kennslu

Þorgerður Ingólfsdóttir er einn af fimm kennurum á öllum skólastigum sem Háskóli Íslands veitti viðurkenningar fyrir framúrskarandi störf.Á heimasíðu Háskóla Íslands segir: Menntavísindasvið Háskóla Íslands veitti fimm kennurum viðurkenningar fyrir framúrskarandi störf við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands miðvikudaginn 1. júní. Verðlaunin eru afrakstur kynningarátakisins „Hafðu áhrif“ sem Menntavísindasvið stóð fyrir á vormánuðum en þar gafst almenningi kostur á að tilnefna eftirminnilega kennara á vefsíðunni hafduahrif.is.   Sögum þjóðþekktra einstaklinga var safnað á vef átaksins og í stuttum myndböndum sögðu þeir frá kennurum sem hafa haft áhrif á þá. Tilgangur átaksins var að vekja athygli þjóðarinnar á kennarastarfinu; hversu áhugavert og skemmtilegt það er og hversu mikil áhrif kennarar hafa á einstaklinga og samfélagið.     Viðtökurnar voru afar góðar en nærri 800 manns tóku þátt í átakinu og tilnefndu 350 kennara á öllum skólastigum. Sérstök valnefnd, skipuð sérfræðingum Menntavísindasviðs, fór yfir tilnefningarnar samkvæmt ákveðnum viðmiðum. Niðurstaðan var sú að veita fimm framúrskarandi kennurum á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi viðurkenningar fyrir framlag þeirra til kennslu. Til hamingju Þorgerður og við öll!

Staðfesting á vali og prófasýning / Confirmation of course selection and viewing of test papers

Hér eru nánari leiðbeiningar fyrir staðfestingu vals,   listi yfir áfanga í boði á haustönn og listi yfir áfanga sem falla niður. Dagskrá staðfestingardags mánudagsins 23. maí: Viðtalstímar valkennara dagskóla verða frá 9:00 - 11:00 Prófasýning verður frá 11:15 - 12:15. Nemendur eru hvattir til þess að nýta sér þetta tækifæri til þess að skoða prófin.  Staðfestingu og nauðsynlegri lagfæringu á vali dagskólanema þarf að vera lokið kl. 14:00 og skila þarf inn P-umsóknum fyrir kl. 11:30. Athugið að ekki verður hægt að sækja um P-áfanga í haust. Timetable on course selection day Monday May 23rd: Teachers assisting with course selection will be available from 9:00 - 11:00. Viewing of test papers is possible from 11:15 - 12:15. Students are encouraged to use this opportunity to view the test papers. Confirmation or adjustment of the course selection for spring term has to be finished by 2 o´clock.

Prófatímabilið 2. til 17. maí - Final tests

Próf hefjast mánudaginn 2. maí og standa til þriðjudagsins 17. maí. Veikindi á prófdegi verður að tilkynna skrifstofu skólans (S: 5955200) fyrir kl. 14:00 samdægurs. Þá fær nemandinn upplýsingar um sjúkrapróf. Nemandinn mætir í sjúkrapróf á tilsettum tíma og skilar þar læknisvottorði fyrir veikindadaginn.     Skrifstofa er opin alla virka daga kl. 8:30 - 15:30. Bókasafnið er opið alla virka daga frá kl. 8:00 - 18:00 og laugardaginn 7. maí frá kl. 10:00 - 15:00. Prófstjóri er með viðtalstíma alla prófdaga kl. 10 - 11 í st. 38. Gangi ykkur vel í prófunum! Final exams start on May 2nd and end on May 17th. Students that fall sick during the finals phone the office (Tf. 5955200) before 2 pm on the exam day at which time they will receive  information regarding makeup exams. Students need to hand in a doctor’s note  at the start of makeup exams.   The School office is open from 8:30 am - 3:30 pm Monday – Friday. The Library is open Monday – Friday from 8 am - 6 pm and on Saturday May 7th from 10 am - 2 pm. The administrator in charge of exams can be found in room 38 from 10 – 11 on the mornings of test days. Good luck with your exams!

Náttsól vann í Istanbúl

Hljómsveitin Náttsól, skipuð MH-ingum, vann Vodafone FreeZone highschool music contestfyrir stuttu síðan. Keppnin í Istanbúl var tvíþætt. Annars vegar kepptu 25 Tyrkneskar sveitir (fulltrúar ólíkra svæða á Tyrklandi) sín á milli og fengu ýmis verðlaun og viðurkenningar s.s. skólastyrki og hljóðfærakaupastyrki. Hinsvegar var alþjóðleg keppni og í henni fengu þrjú lönd viðurkenningar. Malta og Gana fengu viðurkenningar fyrir sviðsframkomu en Náttsól frá Íslandi (MH) fékk aðal viðurkenninguna sem var "Best Performance Award". Náttsól vann einnig Söngkeppni framhaldsskólanna fyrir stuttu síðan. Til hamingju! 

Dimissjón

Útskriftarefni kveðja skólann með skemmtun á sal frá 11:35 til 12:35.

Próftafla og umsóknir nemenda um breytingar

Nemendur athugið. Próftafla ykkar er nú aðgengileg á Innu.Nemendur mega sækja um að hliðra próftöflu sinni ef: Tvö próf eru á sama tíma Þrjú próf eru á sama degi Ef tvö löng próf, lengri en ein klukkustund hvort próf, eru á sama degi. Ekki er leyft að breyta próftöflu vegna ferðalaga! Nemendur sem uppfylla ofangreind skilyrði geta sent Guðmundi Arnlaugssyni prófstjóra (profstjori@mh.is) tölvupóst fyrir þriðjudaginn 12. apríl. Spænskupróf - Nemendur í spænsku 1AA, 1BB og 1CC athugið. Af óviðráðanlegum orsökum verður lokaprófið í spænsku haldið 11. maí kl. 11. Þeim nemendum sem vilja frekar taka prófið á áður auglýstum degi, 17. maí kl. 11, býðst að gera það. Vinsamlegast látið spænskukennara vita ef þið kjósið þann möguleika.

HAMRAHLÍÐARKÓRARNIR KALLA Á VORIÐ

Kórarnir í Hamrahlíð, Hamrahlíðarkórinn og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð, kalla á vorið með tvennum tónleikum í hátíðarsal skólans á sumardaginn fyrsta.Þetta er hið árlega VORVÍTAMÍN kóranna, hátíð fyrir alla fjölskylduna með söng,hljóðfæraleik og ýmsum skemmtiatriðum og uppákomum. Það verður líf og fjörallan daginn, leikhorn fyrir börn, vísindastofa, hljóðfærastofa og kaffiveitingar. Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 14 og síðari kl. 16 og eru þeir með ólíkum efnisskrám.Kórarnir hafa valið mörg lög á efnisskrá sem gestir verða hvattir til að taka undirog fagna sumarkomu. Aðgangur er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir. Kór MH er nýkominn úr tónleikaferð um Norður- og Norðausturland en þar hélt hann 5 tónleika m. a. í tónlistarhúsinu Laugarborg í Eyjafjarðarsveit, Þórshafnarkirkju, Félagsheimilinu Miklagarði á Vopnafirði auk skólatónleika fyrir alla nemendur í Langanesbyggð og á Vopnafirði. Þá hafa Hamrahlíðarkórarnir nýlega lokið við upptöku með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónverki Daníels Bjarnasonar "The Isle is Full of Noises".

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð verður á tónleikaferðalagi um Norður- og Norðausturland dagana 8. - 11. apríl nk.

Föstudagskvöldið 8. apríl  heldur kórinn tónleika í tónlistarhúsinu Laugarborg í Eyjafjarðarsveit kl. 20:30. Laugardagskvöldið 9. apríl heldur kórinn tónleika í Þórshafnarkirkju kl. 20:30.        Sunnudaginn 10. apríl syngur kórinn við messu í Skeggjastaðakirkju í Bakkafirði kl. 13 og heldur tónleika í Félagsheimilinu Miklagarði á Vopnafirði kl. 17. Mánudaginn 11. apríl heldur kórinn tvenna skólatónleika, þá fyrri fyrir nemendur í Vopnafjarðarskóla kl.9:30og síðan fyrir Grunnskólana á Þórshöfn og Bakkafirði kl. 13. Aðgangur er ókeypis á alla tónleikana. Á efnisskrá kórsins í tónleikaferðinni eru íslensk og erlend tónverk m. a. eftir J. S. Bach, Carl Orff, Ariel Ramirez, Emil Thoroddsen, Jón Þórarinsson, Jón Nordal, Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigurbjörnsson og Huga Guðmundsson auk þjóðlaga frá ýmsum löndum. Efnisskráin er svo fjölbreytt að kórinn flytur ólík verk eftir því hvort um er að ræða t. d. kirkjutónleika eða skólatónleika. Margir hljóðfæraleikarar eru meðal kórfélaga. Á þessari vorönn er Kór Menntaskólans við Hamrahlíð skipaður 85 nemendum á aldrinum 16 - 20 ára. Stjórnandi kórsins er Þorgerður Ingólfsdóttir. Fararstjórar í ferðinni eru rektor Menntaskólans við Hamrahlíð,  Lárus H. Bjarnason og Orri Páll Jóhannsson fulltrúi Reykjavíkurborgar í skólanefnd MH. Þetta er í fyrsta sinn sem Kór MH heimsækir Langanesbyggð og Vopnafjörð.

Fyrirlestur á vegum foreldrafélaga MH og Kvennó um álag, streitu og kvíða hjá framhaldsskólanemum 6. apríl kl. 20 í MH

Anna G. Steinsen, tómstunda-og félagsmálafræðingur, heilsumarkþjálfi og jógakennari, fjallar um álag, streitu og kvíða framhaldsskólanema og hvernig hægt er að sporna gegn því að þessi líðan verði viðvarandi. Unglingarnir okkar þurfa að takast á við mikinn hraða og áreiti. Það dynja á þeim allskyns skilaboð úr öllum áttum um hvernig þeir eiga að vera, hvað þeir eiga að gera og hvernig þeir eiga að haga sér. Kvíði og streita er ekki eitthvað sem við viljum að unga fólkið okkar fari með út í lífið og því spurning hvað við getum gert sem foreldrar. Við hvetjum alla foreldra til að koma og hlusta á áhugaverðan fyrirlestur miðvikudaginn 6. apríl kl. 20:00 í st. 11 í MH. Foreldraráð MH

Fyrsti kennsludagur eftir páska

Kennsla samkvæmt stundaskrá hefst aftur miðvikudaginn 30. mars.