Matseðill Sómalíu matsölu nemenda

Mánudagar: Grjónagrautur og lifrarpylsusneið, 400 kr. Hægt að kaupa lítinn rúsínupakka á 50 kr.

Þriðjudagar: Óákveðið.

Miðvikudagar: Annan hvorn miðvikudag er súpa á 250-500 kr. eftir því hversu íburðarmikil hún er, algengast verð er þó 350  eða pylsur á 230 kr.

Fimmtudagar: Kínverskur matur frá Tíunni á Grensásvegi, verð frá 700-900 kr.

Föstudagar: Pítsa frá Dominos. 1 sneið 250 kr. 2 sneiðar 400 kr. og hálf pítsa á 750 kr. (þetta eru 15 tommu pítsur)

Þriðjudaga til föstudaga er frír hafragrautur kl. 9:00 í samstarfi við skólann.

Ýmislegt annað sem útbúið er flesta daga:

  • Boost/skyrþeytingur, 380 kr. Útbúið að morgni úr skyri, mjólk, banana og ávaxtasafa+ jarða- og hindberjum eða jarða-, bróm- og bláberjum eða mangó, ananas og kókosvatni.
  • Ávaxtaþeytingur, 380 kr. Eins og boost en án mjókurvara.
  • Cheerios poki, 90 kr.
  • Epli, appelsínur, perur og banana 80 til 120 kr.
  • Flatkökur með osti 190 kr.
  • Flatkökur með vegan osti og smjöri 190 kr.
  • Gulrætur 100 kr. 
  • Harðsoðin egg 80 kr.
  • Hrökkbrauð 15 kr.
  • Hummus 230 kr.
  • Kaffi, 110 kr.
  • Kotasæla 150 kr.
  • Kókómjólk 130 kr.
  • Léttmjólk 1/4 ltr. 65 kr.
  • Smurð heilhveitihorn m. skinku og osti 340 kr.
  • Smurð rúnnstykki m. skinku og osti 300 kr.
  • Smurð rúnnstykki m. vegan osti og smjöri 300 kr.
  • Smurð rúnnstykki m. gúrku og osti 300 kr.
  • Smurð rúnnstykki m. papriku og osti 300 kr.
  • Smurð rúnnstykki m. kjúklingaskinku og osti 300 kr.
  • Smurt hafrabrauðsneið m. osti 210 kr.
  • Smurt hafrabrauðsneið m. vegan osti og smjöri 210 kr.
  • Te, 80 kr.
  • Vínber 150 kr.
  • Þurrkuð epli 145 kr.

Gott úrval af mjólkurvörum, orkustöngum, samlokum og söfum. Hægt er að fá laktósafría mjólk í kaffið og/eða hafragrautinn fyrir þá sem vilja. 

Fleira sem er til sölu: strætómiðar fyrir ungmenni á 200 kr., blýantar, strokleður, yddarar, batterí, hengilásar, dömubindi og tíðatappar og smokkar.

Matsölustjóri: Ellý Hauksdóttir Hauth, netfang somaliamh@gmail.com, sími 517-1099 og 690-3545.

 

Síðast uppfært: 22. júní 2017