Endurnýjun skólavistar

Eftir að nemandi hefur fengið skólavist í MH á nemandinn rétt á að halda námi áfram í allt að 9 annir að því tilskildu að nemandinn hafi náð lágmarkseinkunn fyrir skólasókn, lágmarkseiningum á hverri önn og að nemandinn hafi ekki brotið reglur skólans hvorki ítrekað né alvarlega.

Til þess að halda þessum rétti verður nemandinn eða einhver á hans vegum að sjá um eftirtalin atriði á tilsettum tíma:

a) að velja áfanga,

b) að staðfesta valið,

c) að greiða skólagjöld.

 

Síðast uppfært: 20. október 2021