Opið fyrir umsóknir um skólavist fyrir vorönn 2026

Þeir nemendur sem hafa hug á að sækja um skólavist í MH fyrir næstu önn geta gert það núna. Opnað hefur verið fyrir umsóknir í gegnum Ísland.is og er hægt að sækja um skólavist út nóvember.

Kynningarefni er aðgengilegt á heimasíðunni og hvetjum við ykkur öll til að skoða það vel. Einnig er hægt að kíkja í heimsókn og ræða við okkur um möguleikana sem eru í boði í MH.

Kynningar á áföngum sem verða í boði á næstu vorönn má finna á heimasíðunni.