Fyrsta ball skólaársins verður í dag, miðvikudaginn 16. september í Gamla Bíó. Húsið opnar klukkan 22:00, því lokar 23:00 og ballinu lýkur kl. 01:00. Athugið að það er venjulegur skóladagur á morgun og kennsla hefst kl. 8:20 skv. stundaskrá eins og venjulega. Góða skemmtun.
Eins og öll önnur böll skólans er ballið áfengis- og vímulaust. Nýnemar skólans blása í áfengismæli á böllum NFMH. Aðrir nemendur fá einnig að blása í áfengismæli og geta þannig tekið þátt í fyrirmyndarpotti/edrúpotti og eiga tækifæri á vinningum sem að Skemmtó er búið að safna saman!
Félagsmálafulltrúar og forvarnarfulltrúi skólans verða á staðnum auk aðkeyptrar gæslu sem mun leita á nemendum í upphafi kvölds til að tryggja öryggi nemenda.
Nánari upplýsingar má lesa í tölvupósti sem sendur var út af félagsmála- og forvarnarfulltrúa í síðustu viku.