Lagningardagar 24. og 25. febrúar

Lagningardagar eru þemadagar Menntaskólans við Hamrahlíð. Á lagningardögum halda nemendur fyrirlestra fyrir samnemendur og starfsfólk tekur einnig þátt í að vera með fyrirlestra. Einnig koma utanaðkomandi aðilar til að skemmta eða halda fyrirlestra. Lagnó í ár er dagana 24. - 25. febrúar. Nemendur þurfa að safna stimplum fyrir mætingu á stimplakort sem þeir fá í skólanum fimmtudaginn 24. febrúar. Í ár þurfa nemendur að fá 18 stimpla í heildina til að fá mætingu. Dagskráin er fjölbreytt og hér má skoða það sem verður í boði í ár. Skráning hefst eftir helgina og verður hlekkur á hana settur á heimasíðu NFMH. Nánari upplýsingar koma á mánudaginn 21. feb.