NHMH og Beneventumsjóður

Í tilefni þess að Menntaskólinn við Hamrahlíð verður 60 ára næsta haust verður afmælisins minnst með ýmsum hætti og umfangsmikil afmælisdagskrá verður laugardaginn 26. september. Nemenda- og hollvinasamtökin NHMH og Beneventumsjóður freista þess að styðja skólann á afmælisárinu. Það gerist bæði með þátttöku í undirbúningi afmælisins og fjárhagslegum stuðningi í gegnum Beneventumsjóðinn. Meðal annarra verkefna er stuðningur við innra starf skólans sem og skipulag og fegrun lóðar og umhverfis skólans þar sem komið verður fyrir listaverkum í eigu hans.

Stjórn Beneventumsjóðs, freistar þess nú að sækja frekari stuðning til allra Hamrahlíðinga. Á næstunni mun birtast í heimabanka ykkar valgreiðsla sem merkt verður MH-60 ára, Beneventumsjóður. Umbeðinni fjárhæð verður mjög stillt í hóf en hún nemur krónum 3.600.-

Við biðjum ykkur að hugsa hlýtt til gamla skólans ykkar af þessu tilefni og þeim mun meiri sem þátttakan verður þeim mun meira gott getum við látið af okkur leiða á vettvangi skólans, ekki bara á afmælisárinu heldur líka um ófyrirséða framtíð.

Við biðjum ykkur líka að hnippa í þá Hamrahlíðinga sem þið þekkið og ekki eru á þessum vettvangi og útkýra fyrir þeim tilurð þessarar valgreiðslu.

Til hamingju MH með 60-árin og hittumst heil í skólanum 26. september í haust.

OG þau sem vilja taka þátt og fengu ekki greiðsluseðil í heimabankann sinn geta lagt inn á 0357-22-003364 kt:6505942749