Þann 24. september 2026 eru 60 ár liðin frá því Menntaskólinn við Hamrahlíð var settur í fyrsta skipti af Guðmundi Arnlaugssyni, þáverandi rektor. Skólinn hyggst halda upp á tímamótin og nú vinnur afmælisnefnd að undirbúningi veglegrar hátíðar sem haldin verður laugardaginn 26. september. MH-ingurinn Brynhildur Björnsdóttir er í forsvari nefndarinnar en hana skipa auk hennar formaður Nemenda- og hollvinasamtaka MH (NHMH), rektor, konrektor, fulltrúar kennara og nemenda. Nefndin hittist reglulega og vinnur að skipulagningu metnaðarfullrar dagskrár þar sem nemendur fyrr og nú eru í aðalhlutverki. Á afmælisárinu verður jafnframt lögð sérstök áhersla á listir í víðum skilningi, meðal annars með viðburðum tengdum tónlist og myndlist sem endurspegla ríka menningarhefð skólans.
NHMH og Beneventumsjóður
-
Nemenda- og hollvinasamtök MH (NHMH) og stjórn Beneventumsjóðs freista þess að styðja skólann á afmælisárinu. Valfrjáls greiðsluseðill, merktur MH–60 ára, Beneventumsjóður, hefur verið sendur í heimabanka útskrifaðra MH-inga. Þeir sem vilja leggja sjóðnum lið í tilefni afmælisins, en hafa ekki fengið greiðsluseðil, geta styrkt verkefnið með því að leggja inn á reikning sjóðsins 0357-22-003364, kt. 650594-2749. Stjórn skólans metur þetta framtak mikils og færir öllum velunnurum innilegar þakkir fyrir stuðninginn.
Tónverkakeppni
-
Afmælisnefnd í samvinnu við Beneventumsjóð hefur ákveðið að efna til samkeppni um tónverk fyrir Kór Menntaskólans við Hamrahlíð, samið við ljóð eftir núverandi eða fyrrum nemendur skólans. Þátttakendur velja úr fimm ljóðum en höfundar þeirra eru: Gerður Kristný, Guðrún Lilja Ólafsdóttir, Hallgrímur Helgason, Lofn og Sóley Mjöll Ásgeirsdóttir. Ljóðin og nánari upplýsingar um keppnina má finna hér. Skilafrestur tónverka er til 14. ágúst.
Listaverk við MH
-
Unnið er að heildstæðu skipulagi og bættri staðsetningu listaverka á lóð skólans. Stjórn Beneventumsjóðs vinnur að verkefninu í samstarfi við arkitekta skólans og Listasafn Reykjavíkur. Listaverkið Öldugjálfur eftir Ásmund Sveinsson, sem staðið hefur í Útgarði, og Vegvísir eftir Þóri Barðdal, sem nú stendur í trjálundi á lóð skólans, verða tekin í gegn og þeim fundinn hentugri staður. Útskriftarárgangur 1982 gaf listaverkið Vegvísi á tíu ára útskriftarafmæli sínu til minningar um Jóhann Hjálmarsson húsvörð og ætlar að kosta lagfæringar á því. Markmiðið er að tryggja að verkin njóti sín sem best og verði sýnilegri í umhverfinu.
Dagskrá afmælishátíðarinnar, laugardaginn 26. september, er í vinnslu og verður birt hér.
Svona líta fyrstu drög út:
Mikligarður:
-
Kl. 11-13 Afmælisskákmót eða fjöltefli
-
Kl. 13:30-15 Leiklistardagskrá
-
Kl. 15-16 Klassískir tónleikar
-
Kl. 19-22 Stórtónleikar þar sem popphljómsveitir skólans að fornu og nýju leiða saman hesta sína
Norðurkjallari:
Undirheimar:
Kl. 10-22 Samsýning myndlistarmanna úr hópi núverandi og fyrrum nemenda MH.
Þessi dagskrá er gefin út með fyrirvara um allar breytingar þar sem hún er enn í mótun.