Búið er að opna fyrir aðgang í Innu og hægt er að skoða stundatöflur.
Öll sem hafa greitt skólagjöld sjá stundatöflur og bókalista áfanga. Einnig hefur verið opnað fyrir umsóknir eldri nemenda um töflubreytingar í Innu, en opið verður fyrir þær umsóknir til og með sunnudeginum 16. ágúst, en eftir það er hægt að mæta til námsráðgjafa eða námstjóra. Einungis eldri MH nemendur geta notað Innu til að sækja um töflubreytingar, en nýnemar og nemendur sem eru að skipta í MH úr öðrum skólum geta komið í viðtalstíma hjá námstjórum ef þeir óska eftir töflubreytingum. Námstjórar verða með viðtalstíma fyrir nýnema á morgun, 14. ágúst milli kl. 09:00 og 14:00 og eftir kynningarfund nýnema 17. ágúst.
Þriðjudaginn 18. ágúst geta eldri nemendur, sem telja sig þurfa töflubreytingu, hitt námstjóra, námsráðgjafa og töflusmiði í MH.
Síðasti dagur töflubreytinga verður föstudagurinn 21. ágúst.
Inna is now open for those who have paid the school fee.