Vorvítamín Hamrahlíðarkóranna

Á uppstigningardag, fimmtudaginn 17. maí, halda kórarnir í Hamrahlíð upp á próflok og sumarkomu með skemmtun í hátíðarsal Menntaskólans við Hamrahlíð. Þetta er hið árlega Vorvítamín sem kórarnir bjóða til.

Kórfélagar, nú í vor rúmlega 100 talsins, halda tvenna tónleika, kl. 14 og kl. 16.

Milli tónleika verður kaffisala og ýmis skemmtiatriði kórfélaga, hljóðfæraleikur, einsöngur, ævintýraheimur fyrir krakka og leyniatriði.

Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Efnisskrár tónleikanna eiga að vekja með öllum vorhug og sumargleði, þar er að finna blöndu gamalla gersema og nýrra. M.a. verða sungin sumar- og ættjarðarlög og vonast er til að allir gestir taki undir með kórunum.

Fögnum björtum dögum og köllum á hlýindin með kórunum í Hamrahlíð á Uppstigningardag.