Valvika í MH

Dagana 9.-13. október velja nemendur áfanga fyrir næstu önn. Samkvæmt hefðinni er framboð áfanga fjölbreytt en mikilvægt er að nemendur kynni sér vel undanfarareglur einstakra áfanga. Á forsíðu heimasíðu skólans er að finna nánari upplýsingar og leiðbeiningar undir Valvika haust 2017. Smelltu hér til að skoða áfangaframboð vorannar 2018. Afar mikilvægt er að val nemenda sé í samræmi við skipulag þeirra námsbrauta sem þeir eru skráðir inn á.