Valvika 5.-12. mars!

Allir nemendur sem ætla að stunda nám í skólanum á haustönn 2012 verða að velja áfanga fyrir næstu önn. Valið er bindandi og stendur frá 5.- 12. mars.  Þess vegna ættu allir að fara að huga að valinu, skoða á heimasíðu MH ”Upplýsingar um val”  áfanga í boði og Áfanga  til að glöggva sig á framgangi valsins.  Leiðbeiningar um innslátt á vali eru í handbók forráðamanna á heimasíðu MH. It is high time to select courses for the autum term 2012. Now you can enter the courses of your choice for next term. Áfangar and áfangaframboð are now available on our homepage.

Nemendur hafa verið skráðir í hóp hjá sérstökum valkennara í P-áfanga sem heitir VAL1001.  Þessi áfangi ásamt hópnúmeri og nafni valkennara, birtist með rauðu letri fyrir ofan stundatöfluna ykkar í Innu. Þessi tiltekni valkennari verður ykkur innan handar við að velja ásmt því að sjá til þess að þið ljúkið að velja á réttum tíma.  Sláið sjálf inn valið ykkar.  Þegar þið hafið slegið inn valið sendið þá póst til valkennarans og skrifið bæði nafn og kennitölu þannig að valkennarinn viti hverjir hafi lokið við að slá inn valið.

Viðtalstímar verða auglýstir síðar fyrir alla nemendur, sem þess þurfa.

 Við vekjum athygli ykkar sem fædd eru 1995 eða síðar að nú er miðannarmatið aðgengilegt í Innu.