Björn Önundur Arnarson er hér í faðmi kórsins sem mun flytja verkið hans í nóvember.
Úrslit í tónverkakeppni Menntaskólans við Hamrahlíð og Beneventumsjóðs liggja fyrir og voru tilkynnt á afmælishátíð skólans laugardaginn 26. september. Sigurvegari keppninnar er:
- Björn Önundur Arnarson fyrir tónverkið Gunnhildur við samnefnt ljóð MH-ingsins Hallgríms Helgasonar. Við óskum Birni Önundi innilega til hamingju og erum spennt að hlýða á kór Menntaskólans við Hamrahlíð frumflytja verkið í nóvember.
Auk sigurverksins hlutu þrjú tónskáld viðurkenningar dómnefndar og verða verk þeirra frumflutt á skólaárinu af Kammerkórnum Huldur eða af kór Menntaskólans við Hamrahlíð. Þetta eru:
- Eiríkur Stephensen, (stúdent 1986), fyrir kórverkið Vor í Skerjafirði, við samnefnt ljóð MH-ingsins Gerðar Kristnýjar.
- Haukur Tómasson (stúdent 1979), fyrir kórverkið Vor í Skerjafirði, einnig við samnefnt ljóð MH-ingsins Gerðar Kristnýjar.
- Kolbeinn Bjarnason, fyrir kórverkið 8:20, við samnefnt ljóð Sóleyjar Mjallar Ásgeirsdóttur núverandi nemanda í MH.
Dómnefndina skipuðu Hreiðar Ingi Þorsteinsson kórstjóri, Hildigunnur Einarsdóttir og Sigríður Soffía Hafliðadóttir MH-ingar og þökkum við þeim kærlega fyrir.
Aðrir sem sendu inn tónverk í keppnina geta vitjað tónverka sinna til konrektors á skrifstofu skólans næstu vikur.