Upphaf skólaársins 2020-2021

Skrifstofa skólans hefur opnað að loknu sumarleyfi. Á þessari stundu er óljóst hvernig skólahaldi verður háttað vegna samkomutakmarkana sem ríkja. Von er á nýjum upplýsingum frá sóttvarnarlækni um samkomutakmarkanir þann 13. ágúst og verður gefið út í kjölfarið hvernig skólahaldi verður háttað við upphaf haustannar.

Stefnt er að því að taka á móti nýnemum þann 18. ágúst og munu nýnemar fá póst með nánari upplýsingum þegar nær dregur. Skólinn mun fylgja þeim relgum sem almannavarnir og sóttvarnarlæknir hafa sett um samkomur og skólahald.

Nánari fréttir verða settar á heimasíðuna í vikunni og eru nemendur hvattir til að fylgjast vel með.