Umsóknir og biðlisti

Alls sóttu rétt tæplega 800 nýútskrifaðir 10. bekkingar um skólavist í MH fyrir næsta haust, þar af 342 með MH í fyrsta vali. Af þessum fjölda gátum við tekið inn 280 nýnema en svigrúm til að taka við fleirum er því miður nánast ekkert. 

MH hafnar ekki umsóknum nemenda sem uppfylla inntökuskilyrði skólans, en úrvinnsla umsókna fer fram í tölvukerfi á vegum MMS sem hefur það að markmiði að ná sem bestum niðurstöðum fyrir sem flesta nemendur. Niðurstaðan byggir að mestu leyti á einkunnum úr grunnskóla. Skólar hafa svigrúm til áhrifa með því að raða umsóknum, en endanleg úthlutun ræðst af samspili kerfisins og umsókna allra nemenda. Það er aðeins hægt að tryggja þeim umsækjendum skólavist sem raðast efst á listann og eru með skólann í fyrsta vali. Eftir fyrstu úrvinnslu sitja alltaf nemendur uppi án skólavistar og þá fara skólar yfir umsækjendur sem höfðu skólann þeirra í 1.–3. vali og bjóða þeim pláss ef inntökuskilyrði eru uppfyllt og svigrúm er til staðar. Til þess að koma til móts við þessa þörf var bætt einum umsjónarhópi og þannig gátum við boðið nokkrum nemendum pláss til viðbótar.

Ef staðan breytist í ágúst þá gætum við mögulega boðið einhverjum pláss, en það verður því miður aldrei pláss fyrir öll sem sækjast eftir skólavist. Það má senda Guðmundi konrektor (gud@mh.is) beiðni um að vera sett á biðlista. Um jólin útskrifast hins vegar alltaf um 70-90 nemendur og við höfum því svigrúm til að taka við nýjum nemendum á vorönn. Opnað verður fyrir umsóknir í nóvember og góður árangur í öðrum skólum styrkir umsóknir mjög.

Við viljum þó hvetja alla umsækjendur sem eru á leið í aðra skóla næsta haust, að nálgast það verkefni með jákvæðni og bjartsýni að leiðarljósi. Það leynast mörg frábær tækifæri víðar en í MH.