Þekking, ábyrgð, virðing og víðsýni

Í vor var efnt til samkeppni um listaverk á vegg á Matgarði sem átti að sýna gildi skólans. Hugmyndin hennar Heiðu Maríu Hannesdóttur var valin og hefur hún verið að mála það núna á haustönninni. Í dag afhenti hún svo verkið og tók Steinn rektor stoltur við því. Verkið er stórglæsilegt og má lesa gildi skólans í ramma þess. Takk kærlega Heiða María fyrir alla þína vinnu.

Heiða María á einnig listaverk sem er á bókasafninu og sést í fréttinni hér fyrir neðan.