Myndin sem fylgir fréttinni á mbl.is er tekin fyrir framan listaverk eftir Auði Grétu Þórisdóttur, stúdent vor 2021. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/09/26/myndir_mh_fagnadi_sextiu_ara_afmaeli/
Takk, kæru MH-ingar og aðrir gestir, fyrir komuna í 60 ára afmæli MH á laugardaginn. Það eru forréttindi að fá að taka á móti ykkur öllum og við getum ekki hætt að brosa. Dagskráin sem MH-ingar fyrr og ný buðu okkur upp á var í alla staði frábær og mjög vel sótt. Húsfyllir var af glöðum MH-ingum sem þyrsti í að hitta aðra MH-inga og var mikið um fagnaðarfundi. Takk öll sem komuð fram og gáfuð okkur stórkostlega upplifun á öllum sviðum listarinnar allan daginn. Takk kærlega fyrir frábæran dag.
Frétt af afmælinu á mbl.is