Staðfestingardagur og birting einkunna

Prófum er lokið og einkunnir munu birtast eftir hádegi 17. des. Mánudaginn 19. desember er staðfestingardagur þar sem nemendur geta hitt umsjónarkennarana sína og farið yfir valið fyrir næstu önn. Umsjónarkennarar eru við milli klukkan 10:00-11:00 og má sjá staðsetningu þeirra hér á heimasíðunni.

Námsráðgjafar, námstjórar, áfangastjóri og konrektor verða einnig við, ykkur til aðstoðar. Einhverjir þurfa að gera breytingar miðað við gengi haustannar og hvetjum við ykkur öll til að skoða valið ykkar vel. Prófsýning er milli 11:15 og 12:15 í auglýstum stofum.