Sóttvarnarreglur

Þar sem við erum því miður ekki laus við Covid-19 þá þurfum við að ítreka sóttvarnarreglur svo að skólahald getið gengið sem best fyrir sig.

  • Grímuskylda er í skólanum en taka má grímur niður þegar nemendur hafa fengið sér sæti i kennslustofum.
  • Virðum nándarmörk, þ.e. einn metra.
  • Mælt er með að sótthreinsa borð á milli kennslustunda og gæta að persónubundnum sóttvörnum.
  • Borðum í kennslustofum er raðað upp með einum metra á milli nemenda.
  • Kennslustofur verða opnar á milli tíma.
  • Ekki mega fleiri en 200 koma saman í samkomurýmum skólans, t.d. Matgarði, Miðgarði og Norðurkjallara. Forðumst hópamyndanir.
  • Mælt er að með að nota rakningarapp heilbrigðisyfirvalda.

Ferðalangar sem eru að koma erlendis frá, verða að fara í skimun innan 48 tíma frá komu. Því má ekki koma í skólann fyrr en niðurstaða úr skimun er ljós.

Veikindaskráning er í Innu og þarf að skrá sóttkví eða veikindi á hverjum degi.