Nemendur í enskuáföngunum ENSK2BB05 og ENSK2AB10 eru þessa dagana að lesa bók sem heitir Q&A eftir indverska höfundinn Vikas Swarup. Sagan gerist á Indlandi og veitir nemendum áhugaverða innsýn í menningu sem er töluvert frábrugðin þeirri sem við þekkjum hér á Íslandi. Til að undirbúa nemendur fyrir lesturinn, fengum við góða heimsókn frá indverska sendiráðinu síðastliðinn föstudag, 2. október. Markmiðið með heimsókninni var að gefa nemendum tækifæri til að spyrja ígrundaðra spurninga um bókina, indverska menningu og annað sem hefur vakið forvitni þeirra við lesturinn. Það vildi svo skemmtilega til að heimsóknin var einmitt á afmælisdegi Gandhi svo nemendur fengu einnig fyrirlestur um ævi og störf þess merka manns. Við þökkum sendiherra Indlands á Íslandi, Hr. Shri R. Ravindra, og samstarfsfólki hans, Anisha Tomar og Akash Chahar, kærlega fyrir komuna og fyrir einstaklega fræðandi fyrirlestra og samtal.