Nemendur í MH boðuðu til samstöðufundar til að sýna þolendum kynferðisofbeldis stuðning og að þau væru ekki ein. Fundurinn hófst kl. 11 með því að nemendur gengu út úr tímum og söfnuðust saman á lóð skólans. Þar höfðu nemendur skipulagt ræðuhöld og ljóðalestur og einnig var farið með brot úr einleiknum "Orð gegn orði". Mikill samhugur var í loftinu og tókst fundurinn mjög vel og sýndu nemendur að þau hafa sterka rödd sem þau vilja að heyrist. Skólanum var afhentur kröfulisti þar sem meðal annars var óskað eftir skýrara verklagi, meira öryggi, gagnsæi og fræðslu.
Rúv birti frétt á síðunni sinni og einnig mættu skipuleggjendur í Kastljós og stóðu sig mjög vel.