Próftafla og umsóknir nemenda um breytingar

Próftafla nemenda fyrir haustönn 2012 er nú aðgengileg í Innu. Hægt er að sjá próftöfluna með því að fara í Innu og smella á Próftafla  á lista vinstra megin. Athugið að próftaflan er einungis aðgengileg í Innu. Dagskólanemar mega sækja um að hliðra próftöflu sinni ef:
  • Tvö próf eru á sama tíma
  • Þrjú próf eru á sama degi
  • Ef tvö löng próf, lengri en ein klukkustund hvort próf, eru á sama degi.

Ekki er leyft að breyta próftöflu vegna ferðalaga!

Ef þú þarft að láta færa til próf og uppfyllir ofangreind skilyrði getur þú sent prófstjóra tölvupóst. Umsókn um tilhliðrun ásamt útskýringu þarf að berast í tölvupósti til prófstjóra (profstjori@mh.is) í síðasta lagi föstudaginn 16. nóvember