Próf haustannar / Fall Exam Schedule

Próftafla og umsóknir nemenda um breytingar Próftafla hvers og eins nemanda er nú aðgengileg í Innu. Tengill á próftöflu birtist í vallista vinstra megin þegar komið er inn í Innu. Einnig er tengill efst til vinstri þegar farið er inn í stundatöflu.  Próftafla haustannar 2009 er einnig aðgengileg á heimasíðu skólans undir Námið – Próf – Próftafla. Umsóknir nemenda um breytingar á próftöflu þeirra þurfa að berast Guðmundi Arnlaugssyni prófstjóra (gud@mh.is) fyrir föstudaginn 6. nóvember.Öldungadeildarnemendur sem vilja taka próf með dagskóla þurfa að sækja um það til prófstjóra. Dagskólanemar mega sækja um að hliðra próftöflu sinni ef:
  • Tvö próf eru á sama tíma
  • Þrjú próf eru á sama degi
  • Ef tvö löng próf, lengri en ein klukkustund hvort próf, eru á sama degi.
 Ekki er leyft að breyta próftöflu vegna ferðalaga! Ef þú þarft að láta færa til próf og uppfyllir ofangreind skilyrði getur þú sent prófstjóra tölvupóst. Umsókn um tilhliðrun ásamt útskýringu þarf að berast í tölvupósti til prófstjóra í síðasta lagi föstudaginn 6. nóvember Guðmundur Arnlaugsson prófstjóri, gud@mh.is