Opið hús fyrir grunnskólanema fimmtudaginn 15. mars kl. 17:00 - 19:00

Fimmtudaginn 15. mars verður opið hús í MH  frá kl. 17:00-19:00 fyrir grunnskólanema og forráðamenn þeirra. Haustið 2012 verður innritað á breyttar brautir til stúdentsprófs - opna braut, félagsfræðabraut, málabraut og náttúrufræðibraut. Sjá upplýsingar hér. Einnig verður innritað á listdansbraut og IB-braut. Upplýsingar um umsókn um skólavist, inntökuskilyrði námsbrauta og viðmiðunarreglur MH við inntöku nýnema má finna í valstikunni hér efst til vinstri. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð mun bjóða gestum upp á kaffi og með því og syngur nokkur lög kl. 18:00. Meira um opna húsið...

Í opnu húsi Menntaskólans við Hamrahlíð verður námsframboð, inntökuskilyrði og félagslíf skólans kynnt. 

Deildarstjórar, kennarar, stjórnendur, náms- og starfsráðgjafar, hjúkrunarfræðingur og forvarnafulltrúi munu sitja fyrir svörum um námsframboð og annað sem gestum liggur á hjarta varðandi nám við skólann. 

Náms-og starfsráðgjafar verða með glærusýningu um brautir skólans og ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir þá sem huga á nám hér í M.H. 

Glæsilegt bókasafn skólans verður opið gestum og einnig gefst tækifæri til þess að kíkja í hinar ýmsu kennslustofur.

Nemendur í nemendafélaginu sýna myndband um félagslíf skólans kl. 17:15, 17:45 og 18:30. Þeir verða einnig með leiðsögn um skólann sem hefst við stofu 11 kl. 17:30 og 18:30. 

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð mun bjóða gestum upp á kaffi og með því og syngur nokkur lög kl. 18:00.