Nýnemadagur mánudaginn 17. ágúst
Við bjóðum alla nýja MH-inga hjartanlega velkomna í skólann!
Nýnemakynningin fer fram mánudaginn 17. ágúst kl. 13:00–15:00. Þar fá nemendur tækifæri til að kynnast skólanum, hitta umsjónarkennarann sinn og fá mikilvægar upplýsingar um fyrstu dagana í MH.
Um kl. 13:20 fara nemendur með sínum umsjónarkennara í stofu. Þar verður meðal annars farið yfir stundatöflur, mætingu og það sem gott er að hafa í huga þegar skólagangan hefst.
Um kl. 14:00 taka nemendur úr NFMH á móti nýnemum og fara með þeim í göngutúr um skólann. Göngutúrnum lýkur í Norðurkjallara þar sem nýnemar fá léttar veitingar og kynningu á starfi nemendafélagsins.
Við hlökkum til að taka á móti nýnemum og hefja nýtt skólaár saman!