Nordplus Junior verkefni veturinn 2026 - 2027

Langar þig að taka þátt í spennandi alþjóðlegu samstarfsverkefni og ferðast til Finnlands? MH tekur þátt í Nordplus Junior verkefni í samstarfi við menntaskólann Helsinki Upper Secondary School of Languages í Helsinki. Verkefnið fjallar um jarðfræði og umhverfismál og ber heitið:
Geological Formations: Impact of the Past, Present and Future in Nordic Countries.
Í verkefninu verður unnið að fjölbreyttum og skilgreindum viðfangsefnum ásamt vettvangsferðum og heimsóknum. Nánari upplýsingar veita jarðfræðikennarar skólans og einnig hefur hlekkur á umsóknareyðublað verið sendur til nemenda.