MH komin í fjögurra liða úrslit Morfís

Valgerður Birna Magnúsdóttir, Daði Víðisson, Arnaldur Halldórsson og Saga Evudóttir Eldarsdóttir
Valgerður Birna Magnúsdóttir, Daði Víðisson, Arnaldur Halldórsson og Saga Evudóttir Eldarsdóttir

Í gær keppti ræðulið MH við ræðulið Kvennó um sæti í fjögurra liða úrslitum Morfís. Umræðuefni var "Lygar" og voru MH-ingarnir á móti en Kvennó með. Lið MH bar sigur úr býtum og óskum við þeim innilega til hamingju með það. MH-ingurinn Valgerður Birna var jafnframt kosin ræðumaður kvöldsins.