MH-ingur sigrar í þýskuþraut framhaldsskólanna

MH-ingurinn Ragnhildur Björt Björnsdóttir sigraði í þýskuþraut framhaldsskólanna 2021 en um er að ræða landskeppni í þýsku. Verðlaunin eru tveggja vikna dvöl í Þýskalandi þar sem Ragnhildur Björt mun taka þátt í skemmtilegum verkefnum með nemendum víðsvegar að úr heiminum. Við óskum Ragnhildi Björt innilega til hamingju með árangurinn.