Menntaskólinn við Hamrahlíð fagnar því að félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi hafi formlega boðið okkur velkomin í hóp UNESCO-skóla á Íslandi.
UNESCO-skólar eru hluti af alþjóðlegu samstarfsneti skóla, ASPnet (sem starfar undir merkjum UNESCO, mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna). Netið, sem var stofnað árið 1953, nær til þúsunda skóla í yfir 180 löndum og leggur áherslu á að efla alþjóðlega borgaravitund, sjálfbæra þróun, menningarlegan fjölbreytileika og menningu friðar og ofbeldisleysis.
Með inngöngu í UNESCO-skólanetið skuldbindur MH sig til að vinna markvisst að verkefnum sem tengjast heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, mannréttindum, alþjóðasamvinnu og starfsemi Sameinuðu þjóðanna. Slík verkefni eru oft þverfagleg og veita nemendum tækifæri til að tengja námið við áskoranir samtímans. Með því að gerast Unesco-skóli getum við í MH aukið fjölbreytni í kennsluaðferðum og þekkingu nemenda á málefnum Sameinuðu þjóðanna og heimsmarkmiðunum.
Lesa má fréttatilkynningu á vef Unesco á Íslandi.