MH er mannréttindaskóli ársins 2025 hjá Amnesty International

MH er sigurvegari framhaldsskólakeppninnar um Mannréttindaskóla ársins 2025 og safnaði flestum undirskriftum fyrir mannréttindaátakið "Þitt nafn bjargar lífi".

Af því tilefni bauð Íslandsdeild Amnesty International nemendum skólans upp á bollakökur og afhentu nemendafélagi skólans farandbikar og viðurkenningarskjal. Hjartanlega til hamingju nemendur og NFMH.