Listdansarar í Dublin

Listdansarar úr MH að gera góða hluti í Dublin - til hamingju
Listdansarar úr MH að gera góða hluti í Dublin - til hamingju
MH-ingar á listdansbraut og jafnframt í framhaldsdeild Listdansskóla Íslands tóku þátt á heimsmeistaramóti í dansi (Dance World Cup) í júli í Dublin.
Þau voru í hópi 11.500 dansara frá alls 60 löndum og hrepptu silfur í Ballett Large Group Senior, silfur í Solo Showstopper Senior, brons í Jazz Small Group, brons í Lyrical duett Senior, 6. sæti í Solo Ballett Repertoire Junior, 10. sæti í Lyrical Large Group Senior og 15. sæti í Solo jazz Junior.
 
Einnig fengu tveir dansarar Golden Ticket fyrir sólóin sín í Ballett og Showstopper sem er sérstök viðurkenning dómara sem er veitt aukalega fyrir aðgöngu í Masterclasses á Spáni. Á myndunum eru Iðunn (stúdent vor 2026), Indiana, Lísa og María ásamt öðrum dönsurum, skólastjóra og kennara úr LÍ. Dansarnir kepptu í mismunandi mörgum flokkum, sum í einum og önnur í 4-5.
Innilega til hamingju öll