Föstudagskvöldið 6. mars frumsýndi leikfélag MH söngleikinn Djúpt inn í skóg eftir Stephen Sondheim. Undirbúningur sýningarinnar hefur staðið síðan í haust, undir styrkri stjórn Gunnars Björns Guðmundssonar leikstjóra og Gunnlaugs Bjarnasonar tónlistarstjóra. Óhætt er að segja að áhorfendur hafi verið hæstánægðir með sýninguna og get þau sem eiga miða á næstu sýningar látið sig hlakka til.
Að baki sýningunni liggur þrotlaus vinna ótal nemenda við allt sem henni tengist, bæði á sviði og baksviðs, sem og í markaðssetningu og við hönnun alla. Við óskum þeim öllum hjartanlega til hamingju.
Næsta sýning er sunnudaginn 8. mars. Miða og nánari upplýsingar um sýningartíma má nálgast á Tix.is