Kynningarfundur fyrir nýnema vorannar

Nýnemar vorannar eru boðuð í skólann miðvikudaginn 3. janúar kl. 13:00. Fundurinn verður í stofu 11 og munum við taka á móti ykkur við innganga skólans og leiðbeina á réttan stað. Á kynningunni verður farið yfir helstu atriði sem skipta máli í byrjun annar. Öll hafið þið fengið stundatöflur og leiðbeiningar um hvernig virkja eigi Office 365 aðganginn. Ef eitthvað er athugavert við stundatöfluna eða matið á áföngum úr fyrri skólum þá eru námstjórar til viðtals eftir kynningarfundinn.