Kór Menntaskólans við Hamrahlíð í tónleikaferð um Vesturland og Strandir

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð verður á tónleikaferðalagi um Vesturland og Strandir dagana 26. - 28. mars. Kórinn heldur tónleika í félagsheimilinu Dalabúð í Búðardal laugardaginn 26. mars kl. 17. Sunnudaginn 27. mars syngur kórinn við messu kl. 14 í Reykhólakirkju  og um kvöldið kl. 20 verða almennir tónleikar í Hólmavíkurkirkju. Mánudaginn 28. mars heldur kórinn tvenna skólatónleika, fyrir Grunnskólann á Hólmavík. og í Auðarskóla. Um kvöldið verða almennir tónleikar kórsins í Stykkishólmskirkju kl. 20. Aðgangur er ókeypis á alla tónleikana. Á efnisskrá kórsins... Á efnisskrá kórsins í tónleikaferðinni eru íslensk og erlend tónverk m. a. eftir J. S. Bach, G. F. Händel, Béla Bartók, Jón Þórarinsson, Jón Ásgeirsson, Atla Heimi Sveinsson og Þorkel Sigurbjörnsson auk þjóðlaga frá ýmsum löndum. Efnisskráin er svo fjölbreytt að kórinn flytur ólík verk eftir því hvort um er að ræða t. d. kirkjutónleika eða skólatónleika. Hljóðfæraleikarar eru meðal kórfélaga.

Á þessari vorönn er Kór Menntaskólans við Hamrahlíð skipaður 87 nemendum á aldrinum 16 - 20 ára.
Stjórnandi kórsins er Þorgerður Ingólfsdóttir. Þetta er í fyrsta sinn sem Kór Menntaskólans við Hamrahlíð heimsækir Búðardal, Reykhóla og Hólmavík. Fararstjórar í ferð kórsins eru rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, Lárus H. Bjarnason og Jóhann Ingólfsson kennari.

Laugardagur 26. mars kl. 17      Tónleikar í félagsheimilinu Dalabúð, Búðardal.

Sunnudagur 27. mars  kl. 14      Sungið við messu í Reykhólakirkju.
                 -   20      Tónleikar í Hólmavíkurkirkju.

Mánudagur 28. mars   kl. 10      Skólatónleikar fyrir Grunnskólann á Hólmavík.
                      -  14:30   Skólatónleikar fyrir Auðarskóla
                      -  20      Tónleikar í Stykkishólmskirkju.