Kór Menntaskólans við Hamrahlíð í tónleikaferð í Borgarfirði 17. - 19. apríl

Laugardaginn 17. apríl heldur kórinn tónleika í Reykholtskirkju  kl. 16. Sunnudaginn 18. apríl syngur kórinn við messu í Borgarneskirkju kl. 14 og um kvöldið verða almennir tónleikar í Hriflu, sal Háskólans á Bifröst kl. 20.Mánudaginn 19. apríl heldur kórinn ferna skólatónleika, í Varmalandi (fyrir nemendur Varmalandsskóla og nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar að Kleppjárnsreykjum), tvenna tónleika í Mennta- og menningarhúsinu í Borgarnesi (fyrir nemendur Menntaskóla Borgarfjarðar og nemendur Grunnskólans í Borgarnesi) og í Fjölbrautaskóla Vesturlands, Akranesi. Um kvöldið heldur kórinn tónleika í Hallgrímskirkju í Saurbæ kl. 20.30. Aðgangur er ókeypis á alla tónleikana. Efnisskrá...

 

Á efnisskrá kórsins í tónleikaferðinni um Borgarfjörð eru íslensk og erlend tónverk m. a. eftir J. S. Bach, W. A. Mozart, Carl Orff, Emil Thoroddsen, Gunnar Reyni Sveinsson, Atla Heimi Sveinsson og Þorkel Sigurbjörnsson auk þjóðlaga frá ýmsum löndum. Efnisskráin er svo fjölbreytt að kórinn flytur ólík verk eftir því hvort um er að ræða t. d. kirkjutónleika eða skólatónleika. Margir hljóðfæraleikarar eru meðal kórfélaga.

 

Á þessari vorönn er Kór Menntaskólans við Hamrahlíð skipaður 104 nemendum á aldrinum 16 - 20 ára. Stjórnandi kórsins er Þorgerður Ingólfsdóttir. Kórinn hélt tónleika í Reykholtskirkju 2005 en hann heimsótti Reykholt í fyrsta sinn árið 1970. Kórinn hefur áður heimsótt Borgarnes (1977, 1984 og 1991). Fararstjóri í ferð kórsins um Borgarfjörð er rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, Lárus H. Bjarnason.