Japanskir nemendur heimsóttu MH

Við fengum góða gesti í liðinni viku, en hingað komu alls 58 nemendur og 6 kennarar frá Otemon Gakuin High School í Osaka. Hópurinn heimsótti MH í tvennu lagi, 14. og 17. september. Nemendur í áfanganum JAPA1AA05 tóku á móti hópnum, leiðsögðu um skólann og áttu samtöl við gestina, sem voru ánægð með komuna. Lesa má nánar um heimsóknina og sjá fleiri myndir á þessari síðu.