Innritun í dagskóla

Innritun í dagskóla fyrir vorönn 2008 fer fram dagana 1. nóvember til 25. nóvember.Allar umsóknir um nám í dagskóla eru rafrænar. Sótt er um á netinu á skólavef menntamálaráðuneytisins, menntagatt.is.

Umsækjendur sem ekki hafa veflykil tiltækan geta sótt hann á menntagatt.is. Nemendum sem koma erlendis frá er einnig bent á að setja sig í samband við þá skóla sem þeir hafa áhuga á að sækja um.

Við útfyllingu umsóknar er framhaldsskóli valinn ásamt skólum til vara, sem og námsbraut og önnur þjónusta sem er í boði í einstökum skólum.

Hægt verður að fylgjast með afgreiðslu umsókna í desember á svæði nemandans menntagátt.