Nú er skólinn að vinna í stundatöflum nemenda og því hefur Innu verið lokað um stundarsakir. Stefnt er að því að opna hana aftur eftir kl. 16 miðvikudaginn 12. ágúst. Þá munu þau sem hafa greitt skólagjöld sjá stundatöflur og bókalista áfanga. Á sama tíma verður opnað fyrir umsóknir eldri nemenda um töflubreytingar í Innu, en opið verður fyrir þær umsóknir til og með sunnudeginum 16. ágúst. Einungis eldri MH nemendur geta notað Innu til að sækja um töflubreytingar, en nýnemar og nemendur sem eru að skipta í MH úr öðrum skólum geta komið í viðtalstíma hjá námstjórum ef þeir óska eftir töflubreytingum. Námstjórar verða með viðtalstíma fyrir nýnema 13. og 14. ágúst milli kl. 10:00 og 14:00 og eftir kynningarfund nýnema 17.ágúst. Eldri nemendur sem óska eftir töflubreytingum geta hitt námstjóra, námsráðgjafa og töflusmiði þriðjudaginn 18. ágúst. Skipulag þess dags verður auglýst síðar. Síðasti dagur töflubreytinga verður föstudagurinn 21. ágúst.
Inna is closed but will open August 12th for those who have paid the school fee.