Frá Prófstjóra

Próftafla og umsóknir nemenda um breytingarPróftafla haustannar 2007 er aðgengileg á heimasíðu skólans undir Námið – Próf – Próftafla. Umsóknir nemenda um breytingar á próftöflu þeirra þurfa að berast Guðmundi Arnlaugssyni prófstjóra (gud@mh.is) fyrir 16. nóvember.

Öldungadeildarnemendur sem vilja taka próf með dagskóla þurfa að sækja um það til prófstjóra. Dagskólanemar mega sækja um að hliðra próftöflu sinni ef:

· Tvö próf eru á sama tíma

· Þrjú próf eru á sama degi

· Ef tvö löng próf, lengri en ein klukkustund hvort próf, eru á sama degi.

Ekki er leyft að breyta próftöflu vegna ferðalaga! Ef þú þarft að láta færa til próf og uppfyllir ofangreind skilyrði getur þú sent prófstjóra tölvupóst eða fyllt út bláa eyðublaðið sem er í kassa fyrir utan skrifstofu skólans. Eftir að hafa fyllt blaðið út setur þú það í póstkassa prófstjóra sem er þar líka.

Umsókn um tilhliðrun ásamt próftöflu þarf að berast í póstkassa prófstjóra í síðasta lagi föstudaginn 16. nóvember. Vitjið afgreiðslu umsókna á skrifstofu skólans föstudaginn 23. nóvember.

Guðmundur Arnlaugsson prófstjóri, gud@mh.is