Fögnum fimm skrefum!

Fimm skrefum fagnað með veglegri köku.
Fimm skrefum fagnað með veglegri köku.

MH býður starfsfólki skólans kökusneið í dag í tilefni af því að hafa stigið 5. græna skrefið í samnefndu verkefni á vegum Umhverfisstofnunar en áfanganum var náð í desember síðastliðnum. Fimmta skrefið felst í því að stofnanir setji á fót eigið umhverfisstjórnunarkerfi og fagnar skólinn því að búa nú yfir slíku kerfi.