Matyas McDaniel sýnir ljósmyndir sem teknar hafa verið á síðust fjórum árum en það er sá tími sem hann hefur af ástríðu stundað listformið.
Matyas sem er aðeins 16 ára gamall, heillaðist í upphafi af því hvernig myndavélin getur fangað ljós og umbreytt því í mynd. Andlitsmyndir, arkitektúr og staðir sem náttúran hefur tekið aftur til sín er það sem hann hefur mest verið að vinna með að undanförnu. Form, línur og rúmfræði leynast bæði í manngerðu og náttúrulegu umhverfi. Flestir ættu að geta tengt myndefnið við einhverjar minningar úr lífi sínu og notið þeirra á sinn hátt.
Nánar má lesa um sýninguna á vef Borgarbókasafnsins