Veikindi á prófatíma

Ef nemendur eru veikir á prófdegi þá þarf að tilkynna það í gegnum Innu fyrir kl. 14 á sama degi og prófið er. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni undir Námið, próf, sjúkrapróf

Í lok hvers prófdags fer prófstjóri yfir skráðar veikindatilkynningar í Innu, staðfestir þær og veitir upplýsingar um sjúkraprófstíma. Staðfestingin sést í Innu viðkomandi nemenda og forráðamanna og kemur einnig fram í tölvupósti. Prófstjóri hefur netfangið profstjori@mh.is og er með viðtalstíma milli 10 og 11 alla daga.

Til viðbótar þurfa nemendur 18 ára og eldri að mæta með læknisvottorð í sjúkraprófið til staðfestingar á veikindum sínum. Nemendur yngri en 18 ára þurfa þess ekki.

Nemendur sem eru forfallaðir af öðrum orsökum en veikindum þurfa að hafa samband við skrifstofu skólans í síma 595-5200.