Fannar Smári Jóhannsson nemandi í MH náði þeim frábæra árangri að vera í öðru sæti í úrslitakeppninni í Efnafræði. Hann var jafnframt efstur í verklega hluta keppninnar (tilraunum) með 35,34 stig af 40. Fannar Smári mun því vera í fjögurra nemenda landsliði Íslands í efnafræði sem tekur þátt í 9. Norrænu Ólympíukeppninni í efnafræði sem haldin verður í Helsinki í Finnlandi 6.-9. júlí og 58. Alþjóðlegu Ólympíukeppninni í efnafræði sem haldin verður í Tashkent í Úsbekistan 10.-19. júlí í sumar.Til hamingju Fannar Smári.