Draugasögur á Grund

Nemendur í áfanganum íslenskar draugasögur, ÍSLE2BÚ05, fóru í heimsókn á elliheimilið Grund á dögunum, ásamt kennara sínum Elvu Brá. Þau lásu frumsamdar og einnig gamlar draugasögur fyrir heimilisfólkið. Einnig sögðu þau frá atburðum úr samtímanum sem komu frá þeim sjálfum eða voru sögusagnir. Heimsóknin vakti mikla lukku heimilisfólksins og fengu nemendur safa og nammi í verðlaun.