Nokkrir af fulltrúum árgangsins hittust af þessu tilefni og stilltu sér upp við Vegvísi.
Birgir Guðmundsson, Karl Axelsson, Gunnar Svavarsson, Vegvísir, Helga rektor og Jón Skúli Indriðason.
Úskriftarárgangur 1982 gaf skólanum listaverkið Vegvísir á 10 ára útskriftarafmælinu sínu árið 1992. Listaverkið er tileinkað þáverandi húsverði skólans, Jóhanni Hjálmarssyni og er verkið eftir Þóri Barðdal. Listaverkinu var upprunalega fundinn staður á meðal lágvaxinna planta á vesturlóð skólans. Síðan eru liðin mörg ár og verkið hefur smá saman týnst inn í skóginn sem þar vex. Í tilefni af 60 ára afmæli skólans í haust, ákvað fyrrnefndur árgangur að láta hreinsa listaverkið og finna því betri stað.