Próflok, sýnidagur prófa og staðfestingardagur

Nú er prófum lokið hjá langflestum MH-ingum og kennarar sitja sveittir við að ganga frá einkunnum. Opnað verður fyrir einkunnir í Innu miðvikudaginn 20. maí kl. 16:00.

Sýnidagur prófa er kl. 11:15-12:15 fimmtudaginn 21. maí.

Stúdentsefni sem þurfa að taka endurtektarpróf fá símtal þess efnis milli kl. 12 - 16 miðvikudaginn 20. maí en þau sem ekkert símtal fá geta byrjað að pússa stúdentshúfuna og henda í smurbrauðstertu.

Staðfestingardagur er fimmtudagurinn 21. maí og þá verður opið fyrir breytingar á áfangavali nemenda. Mikilvægt er að yfirfara valið og muna að staðfesta. Lista yfir áfanga sem nú þegar er vitað að falla niður má finna hér á heimasíðunni.

Umsjónar- og lífsleiknikennarar eru til viðtals kl. 10-11 og geta nemendur komið og hitt þau til að fá ráðleggingar varðandi áfangaval.

Námsgreinar á prófsýnidag Stofa
DANSKA 40
EÐLISFRÆÐI 5
EFNAFRÆÐI 9
ENSKA 31
FÉLAGSFRÆÐI 26
FJÖLNÁMSBRAUT 20
FRANSKA / ÍTALSKA 33
HEIMSPEKI 14
HÚSSTJÓRN 23
ÍSLENSKA 15, 16, 17
JAPANSKA / KÍNVERSKA 45
JARÐFRÆÐI 3
LEIKLIST Mikligarður
LÍFFRÆÐI 1, 2
LÍKAMSRÆKT Vinnustofa E
MYNDLIST 29
SAGA 28
SÁLFRÆÐI 22
SPÆNSKA 41
STÆRÐFRÆÐI 12, 13
SÆNSKA / NORSKA 40
ÞÝSKA 27

 

Staðsetning vegna staðfestingar vals Umsjónarkennarar - eldri nemendur
Skrifstofa IB stallara Alda Kravec
22 Anna Eir Guðfinnudóttir
Skrifstofa námsstjóra Auður Ingimarsdóttir
Skrifstofa áfangastjóra Ásdís Þórólfsdóttir (Ásdís áfangastjóri leysir hana af)
Skrifstofa konrektors Guðmundur Arnlaugsson
Skrifstofa námstjóra Harpa Hafsteinsdóttir
Skrifstofa námstjóra Íris Lilja Ragnarsdóttir
Með norrænu málunum Jóhanna Guðrún Gunnarsdóttir* Pernille leysir hana af
27 Katharina Helene Gross
22 Kristín Björk Hilmarsdóttir
30 Sonja Jóhannsdóttir
Ath. Valgerður Bragadóttir (verður ekki við - nemendur geta leitað til áfangastjóra)
40 Valentin Jules Georges Dezalle

 

Stofa kl. 10 Umsjónarkennari Lífsleiknihópur
14 Halldóra Pálmarsdóttir LÍFS1AA01 (1)
33 Valentin Jules Georges Dezalle LÍFS1AA01 (2)
41 Ragnheiður Kristinsdóttir LÍFS1AA01 (3)
5 Guðný Guðmundsdóttir LÍFS1AA01 (4)
Skrifstofa námsstjóra Harpa Hafsteinsdóttir LÍFS1AA01 (5)
29 Guðlaug Mía Eyþórsdóttir LÍFS1AA01 (6)
31 Geir Finnsson LÍFS1AA01 (7)
Skrifstofa áfangastjóra Valgerður Bragadóttir LÍFS1AA01 (8) (Verður ekki á staðnum en nemendur geta komið til áfangastjóra)