Gleðilega vorönn - stundatöflurnar eru tilbúnar

Stundatöflurnar eru tilbúnar í Innu og sýnilegar þeim sem greitt hafa skólagjöldin. Nýir greiðslulistar eru keyrðir inn að morgni dags virka daga og opnast stundatöflur í kjölfarið. Nýnemar vorannar geta sótt um töflubreytingar hjá námstjórum eftir kynningarfundinn 5. janúar. Aðrir nemendur sem telja sig þurfa töflubreytingu eiga að sækja um sem allra fyrst í gegnum Innu. Leiðbeiningar um það eru í Innu undir Aðstoð. Breyttar töflur birtast í Innu eftir því sem þær vinnast. Ef töflubreytingu er hafnað þá er það oftast vegna þess að hópar eru fullir. Ekki er hægt að sækja um P-áfanga í töflubreytingum. Þeir sem hafa sótt um P-áfanga ættu að fá þá inn eftir fyrstu kennsluvikuna. 

Hægt er að senda inn beiðni um töflubreytingu til og með þriðjudeginum 5. janúar. Eftir það þarf að fara til námstjóra eða áfangastjóra til að breyta töflum. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 6. janúar kl. 9:00. Námsgagnalisti/bókalisti er aðgengilegur í Innu.  

Hér má lesa nánar um byrjun vorannar.

_______________

Your class schedule is now available in Inna for those who have paid the school fee.  Classes start according to the schedule on Wednesday, January the 6th, at 9:00. The book list is accessible in Inna. 

If you have any questions please contact Soffía Sveinsdóttir.