Fannar Smári Jóhannsson, stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð í vor, hlaut bronsverðlaun á Ólympíuleikunum í efnafræði sem haldnir voru í Tashkent, höfuðborg Úsbekistan, í vikunni. Fannar Smári vann sér inn keppnisrétt með því að verða í öðru sæti í úrslitakeppninni í Efnafræði sem haldin var í vor. Þar var hann jafnframt efstur í verklega hluta keppninnar. Fréttin er fengin af mbl.is
Skv. heimildum hafa Íslendingar fengið bronsið nokkrum sinnum t.d. 2023, 2018, 2015, 2011, 2010 og 2008 https://icho-official.org/results/country_info.php?country=Iceland